Sundlaugarnar sem taka þátt í þessu verkefni eru sundlaugin í Mühleye Visp í Wallis kantónu í Sviss og sundlaug Akureyrar. Báðar þessar laugar eru umkringdar fallegri náttúru með stórbrotnum fjöllum sem vaka yfir umhverfi sínu. Það er því engin tilviljun að þessar sundlaugar bjóði nú upp á sundfjallgöngur, þar sem hægt er að sameina sund og fjallgöngur með því að synda upp á nokkur útvalin fjöll!
Hér er hægt að kynna sér þessar sundlaugar aðeins betur með því að lesa stuttar lýsingar á þeim og því sem þær hafa upp á að bjóða.