Þú skráir þig inn á fjallasund.is og velur annað hvort svissneskan fjarka eða íslenskt tröllafjall sem þú vilt „synda upp á“. Í hvert sinn sem þú syndir skráir þú vegalengdina sem þú lagðir að baki. Mikilvægt er svo að fylgjast með hvernig fjallsundgöngunni miðar og hvar þú ert staddur/stödd hverju sinni á uppgönguleiðinni.
Þegar þú nærð á toppinn getur þú svo sannarlega verið stolt/-ur!
Svo skellir þú þér á rassinn og rennir þér niður fjallið og getur strax sett þig í stellingar til að byrja á því næsta. Á reikningnum þínum hefur þú góða yfirsýn yfir öll þau sund sem þú hefur skráð.
Það geta ekki allir sameinað sund með frábæru fjallaútsýni – en það tekst okkur svo sannarlega!
Kennslumyndband: